Jaegwon Kim
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jaegwon Kim (fæddur 1934) er bandarískur heimspekingur sem fæst einkum við frumspeki, hugspeki og athafnafræði, þekkingarfræði og vísindaheimspeki, og er aðallega þekktur fyrir verk sín um takmarkanir efnishyggjukenninga. Kim er William Herbert Perry Faunce prófessor í heimspeki við Brown University
Kim lauk A.B.-gráðu frá Dartmouth College og Ph.D.-gráðu frá Princeton University. Hann hefur kennt heimspeki við Swarthmore College, Cornell University, Johns Hopkins University og University of Michigan í Ann Arbor. Síðan árið 1987 hefur hann gegnt stöðu William Herbert Perry Faunce prófessors í heimspeki við Brown University.
Kim var forseti American Philosophical Association (Central Division) árið 1988-89. Hann hefur verið félagi í American Academy of Arts and Sciences síðan 1991 og í ritstjórn heimspekitímaritsins Noûs síðan 2000.
Efnisyfirlit |
[breyta] Helstu rit
- Kim, Jaegwon, Physicalism: Or Something Near Enough (Princeton: Princeton University Press, 2005). ISBN 0691113750
- Kim, Jaegwon, Mind in a Physical World: An Essay on the Mind-Body Problem and Mental Causation (Cambridge, Mass.: MIT Press, 2000). ISBN 0262611538
- Kim, Jaegwon, Mental Causation (Bradford, 2000).
- Kim, Jaegwon, Philosophy of Mind (Westview, 1996/2005). ISBN 0813342694
- Kim, Jaegwon (ritstj.), A Companion to Metaphysics (Oxford: Blackwell Publishers, 1996). ISBN 0631199993
[breyta] Tengt efni
- Efnishyggja
- Smættarefnishyggja
[breyta] Heimild
- Greinin „Jaegwon Kim“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 16. nóvember 2005.