Hawaii-skyrta
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hawaii-skyrta er skyrta, oftast litrík og yfirleitt stutterma. Þær eru þekktar á Hawaii-eyjum sem Aloha-skyrtur en hefðbundnar skyrtur eru engan veginn eins litríkar og nútíma útgáfur, sem þekktar eru um allan heim.
Algeng mynstur á hawaii-skyrtum eru pálmatré og sólsetur. Algengir litir eru m.a. rauður, appelsínugulur og fjólublár.
Hawaii-skyrtur þykja bera merki um smekkleysi af mörgum en þeir sem taka ástfóstri við þær, nær ætíð karlmenn, klæðast þeim gjarnan til að storka tískulögmálunum.
Nútíma hawaii-skyrtan rekur uppruna sinn til fjórða áratugarins þegar kínverskur kaupmaður hóf að selja skærlitrar skyrtur í búð sinni skammt frá Honolulu. Þær urðu fljótt vinsælar meðal ferðamanna.
Eftir seinni heimstyrjöldina jukust vinsældir hawaii-skyrtunnar til mikilla muna. Ekki síst þar sem Truman Bandaríkjaforseti sást oft í slíkri flík við óformleg tilefni og unndi sér best í slíkum klæðnaði.