Don
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Don er stórfljót í sunnanverðu Rússlandi, 1930 kílómetra langt. Það kemur upp suðaustur af Tula og rennur fyrst til suðausturs en svo til suðvesturs og tæmist í Asóvshaf. Frá beygjunni á fljótinu er styst á milli Don og Volgu og er þar skipaskurður, sem tengir þessi tvö stórfljót saman, 105 kílómetra langur. Stærsta borg við ána er Rostov-na-Donu og er aðalhafnarborgin. Fljótið rennur um frjósamar lendur þar sem ræktað er korn og timbur, einnig eru þar grafin kol úr jörðu. Hægt er að sigla hafskipum til Rostov og fljótaprömmum nálægt 1400 kílómetra upp eftir ánni, sem er því mikilvæg flutningaleið. Til forna hét áin Tanaís og er til dæmis rætt um hana undir því nafni í Ynglinga sögu í Heimskringlu. Áin hefur verið verslunarleið síðan á dögum Skíþa.
Don
Hnattstaða árósanna: 47°10′ N 39°20′ E