Algeirsborg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Algeirsborg (franska: Alger, arabíska الجزائر al-jazā’ir, „eyjarnar“) er höfuðborg Alsír og stærsta borg landsins með um þrjár milljónir íbúa. Lítill rómverskur bær (Icosium) stóð á þessum stað í fornöld, en núverandi borg var stofnuð árið 944 af Buluggin ibn Ziri. Frá því á 16. öld var borgin miðstöð sjóræningja (sbr. Barbaríið) og naut nær algers sjálfstæðis þótt hún væri hluti Ottómanaveldisins að nafninu til.