Arabíska
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Arabíska (عربية Arabiyya) | |
---|---|
Talað hvar: | Alsír, Barein, Egyptaland, Írak, Jemen, Jórdanía, Katar, Kúveit, Líbanon, Líbýa, Máritanía, Marokkó, Óman, Palestínuríki, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádí-Arabía, Súdan, Sýrland og Túnis af meirihluta, og töluð í mörgum löndum til viðbótar af minnihluta íbúa. |
Heimshluti: | Miðausturlönd, Norður-Afríka |
Fjöldi málhafa: | 225 milljónir |
Sæti: | 4 (miðað við móðurmál) |
Ætt: | Afró-asísk mál Semísk mál Mið-semísk mál Suður-mið-semísk mál Arabíska |
Opinber staða | |
Opinbert tungumál: | Alsír, Barein, Djíbútí, Egyptaland, Erítrea, Írak, Ísrael, Jemen, Jórdanía, Katar, Kómoreyjar, Kúveit, Líbanon, Líbýa, Máritanía, Marokkó, Óman, Palestínuríki, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádí-Arabía, Súdan, Sýrland, Tsjad og Túnis. Alþjóðastofnanir: Sameinuðu þjóðirnar, Arababandalagið, Afríkusambandið, Bandalag íslamskra þjóða |
Stýrt af: | Í Egyptalandi: Arabískuakademían |
Tungumálakóðar | |
ISO 639-1: | ar |
ISO 639-2: | ara |
SIL: | ABV |
Tungumál – Listi yfir tungumál | |
Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Arabíska er semískt tungumál sem er upprunið á Arabíuskaganum, en breiddist yfir stærra svæði með útbreiðslu Íslam og er nú talað víðasthvar alla leið frá Marokkó til Íraks. Arabíska er eitt helsta sameiningartákn þeirra sem í dag kalla sig Araba sem eru mun fleiri en þeir sem búa á Arabíuskaganum. Arabísku má skipta í tvennt, bókmenntaarabísku og talaða arabísku. Sú fyrrnefnda er notuð í formlegu máli, af flestum fjölmiðlum og í bókum því sem næst allstaðar þar sem arabíska er töluð og er sú arabíska sem Kóraninn notar. Síðarnefnda gerðin er hinsvegar ekki ein gerð heldur hinar ýmsu mállýskur sem talaðar eru þvert yfir svæðið. Þær eru mjög misjafnar og skiljast jafnvel ekki af þeim sem tala aðrar mállýskur.
Arabíska er skrifuð með arabíska stafrófinu, t.d. er arabíska skrifað svona á arabísku: عربية. Þeir tölustafir (0 1 2 3 4 5 6 7 8 9) og það talnakerfi sem nú er notað um allan heim kom til Evrópu í gegnum arabísku og eru tölurnar því gjarnan kallaðar arabískar tölur en í reynd eru þær upprunnar frá Indlandi og í arabísku eru tölurnar einmitt kallaðar „indverskar tölur“. Arabíska er rituð frá hægri til vinstri líkt og hebreska og hindí, en tölur eru aftur á móti ritaðar frá vinstri til hægri.