Unix
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Unix eða UNIX er hópur stýrikerfa fyrir tölvur, það fyrsta skrifað á sjöunda og áttunda áratug tuttugustu aldarinnar á Bell ransóknarstofum bandaríska símarisans AT&T. Seinna komu svo fram fleiri útgáfur, bæði frá ýmsum fyrirtækjum sem og áhugamönnum undir flaggi GNU hreyfingarinnar.
Unix kerfi eru hönnuð sem fjölnotenda- og fjölforrita-umhverfi sem auðvelt er að breyta fyrir mismunandi vélbúnað. Einkenni þeirra eru einkum einfaldar textaskrár notaðar allstaðar sem hægt er, skipanalína, skráarkerfi með möppuhugtak og framsetning vélbúnaðar og forritasamskipta sem textaskráa.