Túlín
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Erbín | Túlín | Ytterbín | ||||||||||||||||||||||
Mendelevín | ||||||||||||||||||||||||
|
Tulín er frumefni með efnatáknið Tm og er númer 69 í lotukerfinu. Túlín er hefur bjartan, silfur-gráan gljáa, er auðunnið, og er sjaldgæfast allra sjaldgæfra jarðmálma. Það hefur nokkuð tæringarviðnám í þurru lofti og er vel teygjanlegt. Náttúrulegt túlín samanstendur eingöngu af samsætunni Tm-169.
Efnisyfirlit |
[breyta] Notkun
Sökum fágæti túlíns hafa ekki fundist mörg not fyrir það í almennum tilgangi. Það hefur verið notað í að smíða leysa en sökum hás framleiðslukostnaðar hafa þeir ekki reynst arðvænlegir.
[breyta] Saga
Túlín var uppgötvað af Sænska efnafræðingnum Per Teodor Cleve árið 1879 er hann leitaði af óhreinindum í oxíðum annarra sjaldgæfra jarðmálma. Hann byrjaði á því að fjarlægja öll þekkt óhreinindi erbíu (Er2O3) og eftir ákveðið ferli, vann hann úr því tvö ný efni; eitt brúnt og hitt grænt. Brúna efnið reyndist vera oxíð frumefnisins holmín og var kallað holmía af honum en græna efnið var oxíð áður óþekkts frumefnis. Cleve nefndi oxíðið túlía og frumefni þess túlín eftir Túle, sem er gamalt rómverskt nafn yfir goðsagnakent land í norðri, væntanlega Skandinavíu.
[breyta] Tilvist
Túlín finnst aldrei í hreinu formi í náttúrunni, en finnst þó í litlum mæli í steinum ásamt öðrum sjaldgæfum jarðmálmum. Það er aðallega unnið úr mónasíti (~0,007% túlín) úr straumseti með jónskiptiaðferðum. Engin efnasambönd túlíns eru mikilvæg iðnaði.
[breyta] Samsætur
Náttúrulegt túlín samanstendur af einni stöðugru samsætum, Tm-169 (100,0% náttúruleg gnægð). 31 geislasamsætum hefur verið lýst, og sú stöðugasta af þeim er Tm-171 sem hefur helmingunartíma 1,92 ár, Tm-170 með helmingunartíma 128,6 daga, Tm-168 með helmingunartíma 93,1 daga, og Tm-167 með helmingunartíma 9,25 klukkustundir. Allar hinar geislasamsæturnar hafa helmingunartíma undir 64 klukkustundum og meirihluti þeirra undir 2 mínútur. Ytterbín hefur einnig 14 systurkjarna, þar sem þær stöðugustu eru Tm-164m (helmingunartími 5,1 mínúta), Tm-160m (helmingunartími 74,5 sekúndur), og Tm-155m (helmingunartími 45 sekúndur).
Samsætur ytterbíns spanna atómmassa frá 145,966 (Tm-146) upp að 176,949 (Tm-177). Aðal sundrunarháttur þess á undan algengustu stöðugu samsætunni, Tm-169 er rafeindahremming og aðalsundrun eftir það er betasundrun. Aðaldótturefni þess á undan Tm-169 eru samsætur frumefnis 68 (erbín) og aðaldótturefni á eftir er samsætur frumefnis 70 ([[ytterbín]).
[breyta] Varúðarráðstafanir
Túlín hefur hóflegt eitrunarmat og skyldi meðhöndla það með aðgát. Af málmdufti þess stafar eld- og sprengihætta.