Mól
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mól (tákn: mol) er mælieining fyrir efnismagn og ein af sjö grunneiningum SI kerfisins. Eitt mól er skilgreint sem það magn efnis sem samanstendur af ögnum sem eru jafnmargar frumeindunum í 12 grömmum af kolefnissamsætunni 12C. Þessi fjöldi er kallaður tala Avogadrosar og hann er u.þ.b. 6,0221415 · 1023.