Ravenna
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ravenna er borg í Emilía-Rómanja-héraði á Ítalíu. Borgin er stærsta borgin í Rómanja-hluta héraðsins með 146.989 íbúa. Borgin er inni í landi, en tengist Adríahafi með skipaskurðinum Candiano o Corsini. Ravenna hefur tvisvar verið höfuðborg; fyrst Vestrómverska ríkisins, síðan konungdæmis Austgota. Núna er borgin höfuðstaður samnefndrar sýslu.