Krossviður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Krossviður er unninn viður sem búinn er til með því að líma saman lög af viðarspæni. Krossviður er plötuefni sem er mikið notaður í byggingariðnaði og við hvers kyns smíðar. Stundum er hann framleiddur þannig að harðari og mýkri viður skiptast á, en yfirleitt er krossviður framleiddur úr mýkri viðartegundum en ekki úr harðvið. Viðarspænirnir eru lagðir í kross þannig að æðarnar snúa alltaf 90° miðað við lagið á undan og eftir. Lögin eru síðan pressuð saman með hita og límd með sterku lími. Krossviður er mjög stöðugur viður sem verpist ekki eða minnkar vegna þess að æðarnar liggja í kross og toga þannig í allar áttir.
Krossviður er mikið notaður þar sem þörf er á léttu, sveigjanlegu byggingarefni sem auðvelt er að vinna hratt og auðvelt er að endurnýta. Hann er þannig notaður t.d. við bátasmíðar (þá með vatnsheldu lími) og leikmyndagerð, svo eitthvað sé nefnt.