Jón Sigurðsson (forseti)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jón Sigurðsson fæddist 17. júní 1811 á Hrafnseyri við Arnarfjörð og lést í Kaupmannahöfn 7. desember árið 1879. Hann var helsti leiðtogi Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld.
Jón fluttist til Kaupmannahafnar árið 1833 og bjó þar til æviloka. Í fyrstu stundaði hann þar nám í málfræði og sögu við Kaupmannahafnarháskóla en lauk þó aldrei prófi heldur fór að vinna próflaus sem málvísindamaður, m.a. hjá Árnasafni. Viðurnefnið forseti fékk hann upphaflega vegna þess að hann var frá 1851 forseti Hafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags. Hann gegndi jafnframt oft embætti forseta Alþingis, en hann var þingmaður Ísafjarðarsýslu frá 1844 til dauðadags. Kona hans var Ingibjörg Einarsdóttir. Hún sat í festum heima á Íslandi í 12 ár frá 1833, en þau Jón giftust loks þegar hann kom til Íslands á þingið 1845. Þau Jón voru bræðrabörn. Hjónin eignuðust engin börn en ólu upp systurson Jóns, Sigurð Jónsson, frá því hann var átta ára. Jón var aðalmaðurinn á bak við Ný félagsrit allan tímann sem þau komu út.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimildir
- Guðjón Friðriksson. 2002. Jón Sigurðsson- Ævisaga- Fyrra bindi. Mál og menning, Reykjavík.
- Guðjón Friðriksson. 2003. Jón Sigurðsson- Ævisaga- Seinna bindi. Mál og menning, Reykjavík.