Ingibjörg H. Bjarnason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ingibjörg H. Bjarnason (f. á Þingeyri við Dýrafjörð 14. desember 1867, d. 30. október 1941) var um langt skeið skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík og var fyrsta konan sem tók sæti á Alþingi. Hún sat á Alþingi 1922-1930 fyrir sérstakan kvennalista (Kvennalistann eldri).
Efnisyfirlit |
[breyta] Uppvöxtur og menntun
Ingibjörg var dóttir Hákons Bjarnasonar og Jóhönnu Kristínu Þorleifsdóttur. Þau áttu 12 börn en aðeins 5 þeirra komust á legg, það voru Ingibjörg og fjórir bræður hennar. Hákon Bjarnason faðir hennar rak verslun og þilskipaútgerð á Bíldudal. Hann fórst í sjóslysi þegar Ingibjörg var 8 ára. Ingibjörg flutti að lokinni fermingu til Reykjavíkur og hóf nám í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Ingibjörg lauk kvennaskólaprófi í Reykjavík árið 1882 og stundaði nám hjá Þóru Pétursdóttur (einnig þekkt sem Þóra biskups) árin 1882—1884. Hjá Þóru stundaði hún nám í teikningu, dönsku og ensku. Árin 1884—1885 og aftur 1886—1893 stundaði hún framhaldsnám í Kaupmannahöfn. Hún stundaði nám í ýmsum greinum sem tengdust uppeldis- og menntamálum og kynntist m.a. Lingsleikfimi og lauk leikfimikennaraprófi fyrst Íslendinga vorið 1892 frá Poul Petersens Institut. Ingibjörg lagði ríka áherslu á mikilvægi íþróttakennslu. Ingibjörg dvaldist einnig erlendis 1901—1903 og kynnti sér skólahald.
[breyta] Störf að skólamálum og kennslu
Ingibjörg starfaði við kennslu í Reykjavík 1893—1901. Hún var kennari við Kvennaskólann í Reykjavík 1903—1906. Þar var hún nánasti samstarfsmaður Þóru Melsted sem þá stýrði skólanum og þegar Þóra lét af störfum þá tók Ingibjörg við starfi hennar og var forstöðukona skólans frá 1906 til æviloka. Ingibjörg arfleiddi Kvennaskólann að flest öllum eigum sínum og eru skrifstofuhúsgögn hennar enn á skrifstofu skólastjóra.
Ingibjörg kenndi fyrstu árin meðal annars leikfimi, teikningu og handavinnu. Hún kenndi dans í einkatímum utan skólatíma. Síðar kenndi hún eingöngu teikningu, dönsku og heilsufræði fram til 1922. Eitt fyrsta verk Ingibjargar eftir að hún tók við stjórn skólans var að útvega húsnæði fyrir skólann en skólinn fluttist þá í leiguhúsnæði við Fríkirkjuveg.
[breyta] Stjórnmálaþátttaka og félagsmál
Ingibjörg var einn stofnenda Lestrarfélags kvenna í Reykjavík. Hún var einnig ein tólf kvenna er samdi frumvarp er flutt var á Alþingi árið 1915 um þörfina fyrir byggingu Landspítala og var formaður Landspítalasjóðs Íslands. Hún sat í menntamálaráði 1928-1932.
Ingibjörg var landskjörinn alþingismaður 1922-1930. Hún var fyrsta konan til að taka sæti á Alþingi og komst á þing fyrir sérstakan kvennalista (Kvennalistann eldri) sem spratt upp úr kvenréttingabaráttu þessa tíma. Ingibjörg gekk síðar til liðs við Íhaldsflokkinn og þegar hann varð Sjálfstæðisflokkurinn. Þá sat hún á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn til ársins 1930. Ingibjörg var gagnrýnd fyrir að svíkja málstaðinn þegar hún gekk til liðs við karlaflokk. Hún barðist þó ávallt fyrir réttindum kvenna.