Hofsjökull
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jöklar á Íslandi | |
---|---|
Drangajökull | |
Eiríksjökull | |
Eyjafjallajökull | |
Hofsjökull | |
Hofsjökull eystri | |
Langjökull | |
Mýrdalsjökull | |
Ok | |
Snæfellsjökull | |
Tindfjallajökull | |
Vatnajökull | |
Þrándarjökull | |
Öræfajökull |
Hofsjökull er þíðjökull á miðhálendi Íslands staðsettur milli Langjökuls til vesturs og Vatnajökuls til austurs, hann er 925 km² að flatarmáli og 1.765 m hár[1] þar sem hann er hæstur. Hann er þriðji stærsti jökull landsins á eftir Langjökli og Vatnajökli. Hann var áður kenndur við Arnarfell hið mikla og hét þá Arnarfellsjökull en nafni hans var síðan breytt og er hann nú kenndur við Hof í Vatnsdal.
Efnisyfirlit |
[breyta] Skriðjöklar
Þekktustu skriðjöklar Hofsjökuls eru (talið réttsælis frá Arnarfelli): Múlajökull til suðausturs, Blautukvíslarjökull til suðurs, Blöndujökull til vesturs, Kvíslajökull til vest-norð-vesturs og Þjórsárjökull til austurs.
[breyta] Jökulár
Frá Hofsjökli renna stórar jökulár; Blanda, Þjórsá, Jökulfall, Jökulsá austari og vestari.
[breyta] Eldvirkni
Eldfjall (megineldstöð) leynist undir Hofsjökli og sést vel við dýptarmælingar á ísnum en ekki er vitað hvenær það gaus síðast. Stór sigketill er á fjallinu.