George W. Bush
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
George Walker Bush (fæddur 6. júlí 1946; framburður.) er 43. og núverandi forseti Bandaríkjanna. Hann tilheyrir Repúblikanaflokknum og gegndi áður starfi ríkisstjóra Texas. Hann tók við af Bill Clinton 20. janúar 2001 sem forseti eftir að hafa naumlega sigrað mótframbjóðanda sinn úr röðum Demókrata, Al Gore í kosningum í nóvember árið 2000 þar sem Bush fékk reyndar færri atkvæði á landsvísu en náði fleiri kjörmönnum. Bush sigraði svo aftur í kosningunum 2004, þá á móti öldungadeildarþingmanninum John Kerry, nú með naumum meirihluta atkvæða á landsvísu. Varaforseti Bush er Dick Cheney. Seinna kjörtímabili Bush lýkur 20. janúar 2009.
Faðir George W. Bush er George Herbert Walker Bush sem var 41. forseti Bandaríkjanna á árunum 1989 – 1993.
Fyrirrennari: Bill Clinton |
|
Eftirmaður: enn í embætti |