Feldspat
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feldspat er nafn á mikivægum hópi bergmyndandi steinda, sem byggja upp um 60% jarðskorpunnar. Feldspatar kristallast úr kviku í bæði innskotabergi og gosbergi. Þeir koma fyrir sem samfelldar steindir, sem bergæðar og eru einnig til staðar í mörgum gerðum myndbreytts bergs. Berg sem eingöngu er gert úr plagíóklas feldspötum nefnist anorthsít. Feldspatar finnast einnig í mörgum gerðum setbergs.
Feldspötum er skipt í eftirfarandi hópa:
- orþóklas, sem er kalíum-ál-silíkat
- míkróklín, sem er einnig kalíum-ál-silíkat
- plagíóklas, sem er natríum-ál-silíkat til kalsíum-ál-silíkat og samastendur af eftirfarandi einslöguðum kristöllum með ólíka efnasamsetningu:
- albít
- ólígóklas
- andesín
- labradorít
- bytownít
- anortít