Einar Bollason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Einar Gunnar Bollason, fæddur 6. nóvember 1943, er fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari í körfuknattleik. Hann hefur einnig verið formaður KKÍ, setið í nefndum á vegum sambandsins, dæmt og starfað við fjölmiðla tengt körfuboltanum. Um skeið var Einar bæði landsliðsþjálfari og formaður KKÍ á sama tíma.
Efnisyfirlit |
[breyta] Körfuboltaferillinn
Einar hóf feril sinn með ÍR árið 1958 en skipti yfir í KR nokkrum árum síðar. Hann hætti að leika körfuknattleik vegna sjúkdóms snemma á áttunda áratugnum, en dró fram skóna aftur 1976 og lék með KR í þrjú ár til viðbótar. Hann lék auk þess örlítið með Haukum, þegar hann þjálfaði þá 1983-1984. Einar þjálfaði Þór Akureyri, og lék með liðinu, í lok sjöunda áratugarins.
Árið 2001 var Einar kjörinn þjálfari 20. aldarinnar af 50 manna nefnd sem einnig valdi leikmenn og dómara aldarinnar. Einar var auk þess kjörinn í lið 20. aldarinnar sem varamaður. Á þjálfaraferlinum þjálfaði Einar alla þá sem voru valdir í karlalið aldarinnar og báða dómarana. Sá eini sem Einar hafði ekki þjálfað var þjálfarinn sem lenti í öðru sæti; Friðrik Ingi Rúnarsson.
[breyta] Geirfinnsmálið
Þann 26. janúar 1976 var Einar hnepptur í varðhald, grunaður um þátttöku í hvarfi Geirfinns Einarssonar. Nokkur ungmenni, þeirra á meðal Erla, hálfsystir Einars, bentu á hann, Valdimar Olsen, Sigurbjörn Eiríksson og Magnús Leopoldsson. Það varð til þess að Einar sat saklaus í einangrun í 105 daga í Síðumúlafangelsi.
[breyta] Hestamennskan
Einar stofnaði, ásamt fleirum, fyrirtækið Íshesta haustið 1982. Íshestar sérhæfa sig í hestaferðum fyrir ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda.
[breyta] Heimildir
- Leikni framar líkamsburðum eftir Skapta Hallgrímsson, útg. Körfuknattleikssamband Íslands 2001
- Riðið á vaðið eftir Heimi Karlsson, útg. Fróði 1994