Runa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Runa er, í stærðfræði, óendanleg fjölskylda af stökum ásamt vísismenginu . Óformlega má líta á runu sem keðju af fyrirbærum sem koma eitt á fætur öðru, og enginn endir er á. Dæmi um runur væri:
- 1,2,3,4,5,6,7...
- 5,10,15,20,25,...
- 1,1,2,3,5,8,13,21,... (Fibbonnacci runan)
- 1,1,1,1,1,1,... (Fastarunan 1)
Runa er gjarnan táknuð, líkt og fjölskyldur almennt, með svigum, t.d. (a). Þá er það oft ritað , til þess að gefa til kynna að um sé að ræða fjölskyldu þar sem að hvert stak hefur vísi úr mengi náttúrlegra talna. Þá er n-ta stak rununnar táknað an.
Runur eru ýmist samleitnar eða ósamleitnar, takmarkaðar eða ótakmarkaðar. Ef að fjarlægð milli staka minnkar eftir því sem líður á rununa kallast runan Cauchyruna á firðinni sem fjarlægðin er mæld með.
[breyta] Sjá einnig
- Röð
- Fjölskylda
- Mengi
- Mengjafræði
- N-nd