Loftur Guðmundsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Loftur Guðmundsson (18. ágúst 1892 - 4. janúar 1952) var íslenskur ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður. Hann var einn helsti ljósmyndari landsins á öðrum fjórðungi tuttugustu aldar. Hann var fyrst og fremst portrettljósmyndari en tók einni myndir fyrir Leikfélag Reykjavíkur um árabil, auk þess sem hann tók nokkuð af atburða- og staðarmyndum á fyrstu starfsárum sínum. Hann var einn af brautryðjendum íslenskrar kvikmyndagerðar en fyrsta mynd hans var stuttmyndin Ævintýri Jóns og Gvendar sem kom út árið 1923. Næstu árin gerði hann nokkrar heimildarmyndir, en árið 1949 var frumsýnd eftir hann fyrsta íslenska talmyndin í fullri lengd, Milli fjalls og fjöru. Árið 1951 gerði hann svo Niðursetninginn. Loftur skrifaði sjálfur handrit að kvikmyndum sínum.