Konungur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Konungur er þjóðhöfðingi í lýðveldisríki eða einræðis/einveldisríki, sem hlotið hefur tign sína í arf eða verið tekinn til konungs af þjóðinni eða þingi hennar. Konungur þjónar (eða ríkir yfir) þjóð sinni ævilangt, nema því aðeins að hann segi af sér eða sé settur af með einhverjum hætti. Konungstign gengur að jafnaði í arf til elsta sonar, en allnokkur ríki hafa samþykkt breytingu þess efnis að elsta barn konungsins hljóti tignina, hvors kynsins sem það kann að vera.