Interahamwe
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Interahamwe (merkir: þeir sem berjast saman) voru samtök hútúa í Rúanda sem voru, ásamt hinum smærri hópi Impuzamugambi, helst ábyrg fyrir dauða þeirra yfir 800.000 manns sem voru drepnir í þjóðarmorðinu í landinu árið 1994. Forseti Interahamwe var tútsi að nafni Robert Kajuga og varaforseti samtakanna Georges Rutaganda.
Eftir frelsun höfuðborgar Rúanda, Kigali, flúðu margir meðlimir Interahamwe til nærliggjandi landa, flestir til Saír (nú Lýðveldið Kongó). Þaðan gerðu þeir árásir á Rúanda og leiddu þær meðal annars til styrjalda í Kongó.
[breyta] Orðsifjafræði nafnisins
'Intera' kemur af sögninni 'gutera', sem merkir 'að gera árás'. 'Hamwe' merkir 'saman' og tengist orðinu 'rimwe' sem stendur fyrir 'einn'.