Heimsminjaskrá UNESCO
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Heimsminjaskrá UNESCO er skrá yfir staði sem hafa verið tilnefndir sem heimsminjar af alþjóðlegri heimsminjaáætlun UNESCO. Tilgangur skrárinnar er varðveisla staða sem teljast sérstaklega merkilegir frá menningarlegu sjónarmiði og eru taldir hluti af menningararfi mannkyns. Áætluninni var hleypt af stokkunum af UNESCO 16. nóvember 1972. Skráin inniheldur núna 788 staði um allan heim. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að vera mjög Evrópumiðuð og eins fyrir hið stranga verndunarsjónarmið sem liggur henni til grundvallar og er skilyrði fyrir að staður sé tekinn á listann en stundum er það í fullkomnu ósamræmi við eðli staðarins.
[breyta] Listar yfir heimsminjar
- Listi yfir heimsminjar í Afríku
- Listi yfir heimsminjar í Ameríku
- Listi yfir heimsminjar í Asíu og Eyjaálfu
- Listi yfir heimsminjar í Evrópu
- Listi yfir heimsminjar sem eru í hættu