Everestfjall
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Everestfjall | |
---|---|
Everestfjall séð frá Kala Patthar |
|
Hæð: | 8844,43 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning: | Landamæri Nepal og Kína (Tíbet) |
Fjallgarður: | Himalajafjöll |
Everestfjall er hæsta fjall jarðarinnar, alls 8844,43 metrar yfir sjávarmáli skv. opinberum mælingum kínverska ríkisins frá október 2005. Tindur þess er í Tíbet en fjallshryggurinn neðan hans aðskilur Nepal og Tíbet, þ.e.a.s. að landamæri þeirra liggja um hrygginn.
Fyrstu menn á tindinn voru Ný-Sjálendingurinn Edmund Hillary og nepalskur leiðsögumaður hans, Tenzing Norgay, og náðu þeir tindinum 29. maí 1953 um 11:30 að morgni. Þetta var níundi breski leiðangurinn.
Spurningar eru þó uppi um hvort Bretarnir George Mallory og Andrew Irvine hafi komist á tindinn 24 árum áður, en þeir týndust báðir á fjallinu. Lík George fannst árið 1997 í 8530 metra hæð. Tvær vísbendingar gefa sérstaklega til kynna að þeir félagar hafi komist á tindinn:
- George Mallory var vanur að vera með mynd af eiginkonu sinni í vasanum. Myndin fannst hins vegar ekki og því er haldið að Mallory hafi grafið myndina í ísinn á tindinum.
- Snjógleraugu George voru í vasa hans, sem bendir til þess að þeir hafi verið á göngu að nóttu til og fallið. Ef þeir hafi náð tindinum seinni part dags hafa þeir þurft að ganga niður um kvöldið og nóttina - þá er ekki þörf fyrir gleraugun.