Efnaverkfræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Efnaverkfræði er ein af undirgreinum verkfræðinnar sem beitir þekkingu á sviði raunvísinda og verktækni til að hanna, smíða og stjórna ferlum og búnaði sem umbreyta hráefni í verðmætari afurðir. Efnaverkfræði er tæknilega hliðin á efnafræðinni og fæst einnig við rannsóknir og þróun á smíði og framleiðslu nýrra efna og efnasambanda.
Efnaverkfræði snýst að stærstu leyti um aðferðir á framleiðslu kemískra efna á iðnaðarskala og gera það á sem hagstæðastan máta. Í því felast ýmsir tæknilegir ferlar eins og skiljun efna, efnahvörf og varma- og massaflutningar.
[breyta] Tengt efni
- Brennisteinssýra - Framleiðsla á brennisteinssýru