Walt Whitman
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Walter „Walt“ Whitman (31. maí 1819 – 26. mars 1892) var bandarískt skáld, blaðamaður og húmanisti sem fæddist á Long Island í New York. Frægustu verk hans eru ljóðasöfnin Grasblöðin (Leaves of Grass) og Drum-Taps. Hann hóf feril sinn sem blaðamaður og ritstjóri. Hann missti vinnu sína sem ritstjóri á Daily Eagle vegna andstöðu sinnar við þrælahald og gaf eftir það sjálfur út safnið Grasblöðin sem hann átti síðar eftir að breyta og bæta við fyrir nýjar útgáfur nánast alla ævina.