Vistkerfi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vistkerfi er hugtak í vistfræði og vísar til safns af ferlum og einingum sem taka þátt í og valda hegðun einhvers skilgreinds hluta af lífhvolfinu. Hugtakið á venjulega við um allar lifandi og líflausar einingar og samspil þeirra á tilteknum stað, sem getur verið risavaxinn (t.d. Atlantshafið) eða agnarlítill (t.d. eitt fiskabúr), sbr. hugtakið visthrif. Sumir líta svo á að vistkerfi stjórnist af lögmálum kerfisfræðinnar og stýrifræðinnar líkt og öll önnur kerfi. Aðrir telja að vistkerfi stjórnist fyrst og fremst af tilviljunarkenndum atvikum, áhrifum þeirra á lífvana efni og viðbrögðum lífvera.