Vestnorræna ráðið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestnorræna ráðið er samstarfsráð þinga og ríkisstjórna Færeyja, Grænlands og Ísland sem stofnað árið 1985. Ráðið skipa 6 fulltrúar frá hverju landi (18 alls) sem tilnefndir eru af viðkomandi þingum. Ráðið heldur árlega aðalfundi til skiptis í löndunum þremur sem fara með æðsta ákvörðunarvald í málum þess. Framkvæmd og skipulag samstarfsins á milli aðalfunda er í höndum þriggja manna forsætisnefndar sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju landi, einn þeirra telst formaður ráðsins. Núverandi formaður er Jonathan Motzfeldt.
Markmið ráðsins eru eftirfarandi:
- Að vinna saman að vestnorrænum hagsmunum og hugðarefnum.
- Að vernda auðlindir og menningu landanna í Norður-Atlantshafi og efla samráð ríkis- og landstjórna Vestur-Norðurlanda, einkum í viðkvæmum og alvarlegum málum sem snerta t.d. mengun, auðlindanýtingu o.fl.
- Að fylgja eftir samstarfi ríkis- og landstjórna vestnorrænu landanna.
- Að efla samstarf við Norðurlandaráð og koma á framfæri vestnorrænum áhersluatriðum í norrænu samstarfi.
- Að vera tengiliður milli þinga landanna, vestnorrænna stofnana og alþjóðlegra samtaka.
Meðlimir Vestnorræna ráðsins eru einnig í Norðurlandaráðinu en samtökin eru ótengd þrátt fyrir að þau eigi nokkuð samstarf sín á milli.