Slíðurhyrningar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Slíðurhyrningar | |||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Amerískur vísundur
|
|||||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||||
|
|||||||||||
|
|||||||||||
Bovinae Cephalophinae Hippotraginae Antilópur (Antilopinae) Caprinae Reduncinae Aepycerotinae Peleinae Alcelaphinae Panthalopinae |
Slíðurhyrningar er ætt klaufdýra sem finna má víðsvegar um heim, frá Ástralíu til Norðurheimskautsins. Slíðurhyrningar telja bæði villt dýr og húsdýr og helstu tengurndirnar eru bufflar, nautgripir, sauðfé, antilópur og geitur.
Stærstu slíðurhyrningarnir eru meira en tvö tonn að þyngd og alls meira en tveir metrar á hæð en þeir minnstu ekki meira en þrjú kílógrömm og vart stærri en venjulegir heimiliskettir. Þeir hafa það sameiginlegt að vera jurtaætur og geta ekki á beinan hátt melt beðmi heldur hafa margar tegundir örvera í meltingarfærum sínum sem brjóta það niður.