Pétur Gunnarsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Pétur Gunnarsson (fæddur 15. júní 1947) er íslenskur rithöfundur, skáld og þýðandi. Hann er þekktur fyrir skáldsögur sínar eins og þríleikinn Punktur, punktur, komma, strik, Ég, um mig, frá mér, til mín og Sagan öll, en eftir þeirri fyrstu var gerð vinsæl kvikmynd árið 1980. Hann hefur einnig gefið út ljóðabækur, átti texta á plötunni Lög unga fólksins (1977) og tók þátt í að semja barnaleikritið Grænjaxla.
Síðustu þrjár skáldsögur hans; Myndin af heiminum: Skáldsaga Íslands (2000), Leiðin til Rómar: Skáldsaga Íslands II (2002) og Vélar tímans: Skáldsaga Íslands III (2004) eru sögulegar skáldsögur.