Ostrava
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ostrava er þriðja stærsta borg Tékklands. Borgin er staðsett í norðausturhluta landsins, 326 kílómetrum austan við höfuðborgina Prag, um 10 kílómetrum sunnan við landamærin við Pólland og um 50 kílómetrum vestan við landamærin við Slóvakíu. Borgin er liggur í 200-335 metra hæð yfir sjávarmáli, í dal sem nefninst Móravíuhliðið (Moravská brána á tékknesku). Borgin þekur 214 ferkílómetra stórt svæði.
Íbúar Ostrava eru um 315 þúsund talsins.
Ostrava er ein helsta iðnaðarborg Tékklands. Undir borginni eru stórar kolanámur en þeim var öllum lokað eftir fall kommúnismans.