Noam Chomsky
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Noam Chomsky (fæddur 7. desember 1928) er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og virkur þátttakandi í stjórnmálum. Hann er prófessor emeritus í málvísindum við Massachussettes Institute of Technology (MIT). Þar hefur hann starfað síðan 1955.
Noam Chomsky hefur gefið út rit og haldið fyrirlestra um málvísindi, heimspeki og stjórnmál. Hann er vinstrisinnaður og er þekktur fyrir baráttu sína fyrir auknu lýðræði og félagslegu réttlæti. Af vinstrisinnuðum í bandarískum stjórnmálum hefur einna mest borið á honum allar götur síðan á Víetnamstríðinu stóð.
Árið 1968 gaf Chomsky út bókina The Sound Pattern of English ásamt málfræðingnum Morris Halle. Bókin er álitin vera grunnurinn að nútímamálvísindum, þar á meðal hugmyndinni um að tungumálið er meðfæddur eiginleiki („generatíf“ málfræði). Síðan hefur Chomsky talist vera einn fremsti málfræðingur og málvísindamaður nútímans.
Samkvæmt Arts and Humanities Citation Index var vitnað í rit Chomskys oftar en í rit nokkurs annars lifandi manns á árunum 1980-1992. Hann er áttundi á lista þeirra sem hefur verið mest vitnað til frá upphafi.