Jalangurssteinninn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stóri Jalangurssteinninn er annar tveggja rúnasteina í Jalangri (Jelling) í Danmörku. Hann var reistur af Haraldi blátönn um 965 til minningar um foreldra sína Gorm gamla Danakonung og Þyri danabót.
Báðir steinarnir, grafhaugarnir og kirkjan í Jalangri voru sett á Heimsminjaskrá UNESCO árið 1994. Í Jalangri er upplýsingamiðstöð, „Kongernes Jelling“, þar sem fjallað er um staðinn og sögu hans.
[breyta] Rúnaristurnar
Rúnaristur á „rúnahlið“ steinsins:
- haraltr:kunuk?:baþ:kaurua
- „Haraldr konungr bauð gjöra“
- kubl:þausi:aft:kurm faþur sin
- „kuml þessi eftir Gorm föður sinn“
- auk aft:þa;urui:muþur:sina:sa
- „ok eftir Þyri móður sína, sá“
- haraltr ias:s<a;>?·uan·tanmaurk
- „Haraldr sem vann Danmörku“
- ala·auk·nuruiak
- „alla ok Noreg“
- ·auk·tani·<karþi·>kristna;
- „ok Dani gjörði kristna.“