Handbolti
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Handknattleikur eða handbolti er hópíþrótt þar sem tvö sjö manna lið keppast um að koma bolta í mark. Einn liðsmaður úr hvoru liði er markmaður og er sá eini sem má stíga inn í markteiginn á sínum vallarhelmingi. Í vörn standa hinir sex utan teigsins og reyna að hindra sókn andstæðinganna, í sókn sækja þeir að hinu markinu og reyna koma boltanum í mark andstæðinganna. Liðsmenn mega ekki taka fleiri en þrjú skref án þess að drippla boltanum og mega ekki halda boltanum án þess að senda eða skjóta í meira en þrjár sekúndur.