Gylfi Þ. Gíslason
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gylfi Þorsteinsson Gíslason fæddist í Reykjavík þann 7. febrúar 1917, og lést í Reykjavík þann 18. ágúst 2004. Foreldrar hans voru Þorsteinn Gíslason, skáld og ritstjóri, og Þórunn Pálsdóttir, húsmóðir.
Gylfi var alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn árin 1946-1978, menntamálaráðherra 1956-1971, auk þess að vera iðnaðarráðherra 1956-1958 og viðskiptaráðherra 1958-1971. Hann var formaður Alþýðuflokksins 1968-1974.
Þegar Danir skiluðu fyrstu handritunum, Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða, til Íslands árið 1971, tók Gylfi, þá menntamálaráðherra, við þeim frá Helge Larsen, starfsbróður sínum frá Danmörku. Mælti Larsen hin fleygu orð: „Vær så god, Flatöbogen,“ er hann afhenti Gylfa Flateyjarbók.
Synir Gylfa eru Þorsteinn Gylfason heimspekingur, Vilmundur Gylfason, fyrrverandi alþingismaður, og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur. Vilmundur og Þorsteinn eru látnir.