Grímsey (Steingrímsfirði)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Grímsey á Steingrímsfirði er stærsta eyjan úti fyrir Ströndum. Í Grímsey var fyrrum býli og fram á 20. öld höfðu menn vetursetu þarna og verbúðir. Í upphafi 20. aldar voru refir aldir í eyjunni og síðan veiddir þegar mest fékk fyrir skinnið af þeim. Í eyjunni var reistur viti 1915 og síðan endurbyggður 1949, eftir að Þjóðverjar höfðu eyðilagt hann með loftárás í síðari heimsstyrjöld.
Í Grímsey er gríðarleg lundabyggð. Áætlað er að þar séu milli 25-30 þúsund pör af lundum. Frá Drangsnesi eru áætlunarferðir í Grímsey yfir sumartímann. Það er rétt um 10 mínútna sigling.