Bandý
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bandý er innanhúss hóp- og boltaíþrótt spiluð með plastkylfum þar sem markmiðið er að koma lítilli plastkúlu (kölluð bandýkúla) í mark andstæðingsins.
Í bandý eru sex menn í liði, þar af einn markmaður og hafa þeir allir fyrir utan markmanninn kylfu til að stjórna og skjóta kúlunni, en markmaðurinn ver markið með höndum og fótum. Leikmenn mega ekki viljandi nota hendur eða höfuð til að stjórna kúlunni, en leyfilegt er að snerta hana einu sinni í einu með fótunum (oftast til að stoppa hana), en ekki má skora mörk með fótunum eða gefa kúluna með þeim. Núverandi Íslandsmeistari í bandý er knattspyrnuliðið Hamrarnir.
Efnisyfirlit |
[breyta] Völlur
Algengast er að bandývöllur sé 40 metrar að lengd og 20 metrar að breidd en einnig er leyfilegt að spila á 36 · 18 m velli og 44 · 22 m velli. Völlurinn skal afmarkaður af 50 cm háu spjaldi með rúnnuðum hornum.
[breyta] Leiktími
Leiktími er 3 · 20 mínútur með 10 mínútna hléum, leiktími er stöðvaður ef dómari stöðvar leikinn og heldur áfram þegar leikurinn byrjar aftur.
[breyta] Leikmenn
Hvert lið má hafa mest 20 leikmenn þar af 6 á vellinum í einu, skiptingar eru leyfðar hvenær sem er í leiknum og hefur hvert lið ótakmarkaðar skiptingar.
[breyta] Búningar
Leikmenn skulu vera í samstæðum búningum sem samanstanda af treyju, stuttbuxum og hnésokkum, einnig skulu þeir vera í innanhússíþróttaskóm,
[breyta] Heimild
- „Opinberu bandýreglurnar“. Sótt 18. október 2005.