Auðgað úran
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Auðgað úran er úran með hækkað hlutfall af U-235. Náttúrulegt úran er blanda af U-238 (~99,3%), U-235 (~0,7%) og U-234 í snefilmagni. Allar samsæturnar hafa 92 róteindir í kjarna, en 146 eða 143 eða 142 nifteindir. Af þessum samsætum er U-235 gjarnast á að klofna. Við það myndast mikil varmaorka, sem hægt er að nýta til rafmagnsframleiðslu. Þess vegna leitast menn við að hækka hlutfall þess í úranmálminum með því að aðskilja samsæturnar. Auðgað úran inniheldur nálægt 5% af U-235 og því um það bil 95% af U-238.
Auðgað úran er einnig notað við framleiðslu kjarnorkusprengju, en þá er hlutfall U-235 miklu hærra, um 85% eða meira.