Öld
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Öld er hundrað ára tímabil. Venjan er að kalla tímabilið frá og með árinu 100*n+1 til og með ársins 100*n+100. (n+1)-ta öldin. Þannig var 20. öldin árin 1901 til 2000 og fyrsta öldin árin 1 til 100.
Tímatal á vesturlöndum notast yfirleitt við hið svokallaða Anno Domini kerfi, þar sem fæðingarár Krists er kallað 1. árið eftir Krist og eru þá árin talin eins og dagar mánaðarins. Árið þar á undan kallast árið 1 fyrir Krist. Þetta er skýringin á venjunni að ofan. En þetta þykir óheppilegt kerfi þar sem það vantar í það núllið og því hentar það illa til útreikninga. Því notast vísindin oft við svokallað stjörnufræðitímatal þar sem árið 0 kemur í stað ársins 1 f.Kr. og áfram er haldið með neikvæðum tölum aftur í fortíðina. Það er því ekki allskostar rétt sem oft er haldið fram að aldrei hafi verið til árið núll, því vissulega var ár á undan árinu 1 e.Kr. hvort sem það er kallað árið 1 f.Kr. eða árið 0, en þó ber að hafa í huga að þeir sem benda á að árið núll hafi ekki verið til eiga alls ekki við að ekkert ár hafi verið á undan árinu 1 e.Kr., heldur að ekki hafi verið til árið núll innan Anno Domini kerfisins.