Ísafjarðardjúp
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ísafjarðarjúp heitir einn dýpsti fjörður á Íslandi og er hann eitt megineinkenni Vestfjarða. Inn úr Ísafjarðardjúpi ganga svo margir aðrir firðir og víkur; Bolungarvík, Skutulsfjörður, Álftafjörður, Seyðisfjörður, Hestfjörður, Skötufjörður, Mjóifjörður, Vatnafjörður, Reykjarfjörður, Ísafjörður, Kaldalón, auk Jökulfjarða. Norðan Djúpsins liggja Langadalsströnd og Snæfjallaströnd.
Við Djúpið standa fjögur sveitarfélög; Bolungarvík, Hnífsdalur (hluti Ísafjarðarbæjar), Ísafjörður (við Skutulsfjörð) og Súðavík (við Álftafjörð).
Þrjár eyjar eru á Djúpinu; Æðey, Vigur og Borgarey.