Vandalar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vandalar voru germönsk þjóðflutningaþjóð sem stofnaði ríki í Norður-Afríku og eyjum Miðjarðarhafs. Ríki þeirra stóð frá 429 til 534. Löngu eftir þeirra dag voru skemmdarvargar í frönsku stjórnarbyltingunni kallaðir vandalar (franska: vandales) eftir þeim og hefur orðið síðan fengið merkinguna skemmdarvargur í mörgum tungumálum. Héraðið (V)Andalúsía á Spáni er af sumum einnig talin heita í höfuðið á þeim en þar áttu þeir konungsríki um nokkurt skeið.