Skagerrak
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skagerrak er sund í Norðursjó milli suðurstrandar Noregs, Jótlands í Danmörku og suðvesturstrandar Svíþjóðar (Bohuslän). Suður úr Skagerrak liggur Kattegat sem tengist við Eystrasalt um Eyrarsund, Litla-Belti og Stóra-Belti. Bein lína frá Grenen á Skagen á Norður-Jótlandi að Marstrand í Svíþjóð greinir á milli Skagerrak og Kattegat. Nyrst í Skagerrak gengur Oslóarfjörður norður.