Katrín Jakobsdóttir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Katrín Jakobsdóttir er fædd 1. febrúar 1976. Hún er varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
[breyta] Menntun
Katrín lauk grunnskólaprófi frá Langholtsskóla 1992, stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1996 með hæstu einkunn sem fengist hafði á stúdentsprófi þar. Hún lauk BA-prófi í íslensku með frönsku sem aukagrein frá Háskóla Íslands 1999 og MA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 2004 en lokaritgerð hennar fjallaði um Arnald Indriðason.
[breyta] Pólitík
Kjörtímabilið 2002-2006 var hún varaborgarfulltrúi í Reykjavík fyrir R-listann.
[breyta] Annað
Árin 2004 og 2005 var hún einn af umsjónarmönnum Sunnudagsþáttarins á SkjáEinum.
Tvíburarnir Ármann Jakobsson og Sverrir Jakobsson eru bræður hennar. Theodóra Thoroddsen skáld var langamma Katrínar og Dagur Sigurðarson skáld móðurbróðir hennar.