Guðrún Eva Mínervudóttir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðrún Eva Mínervudóttir (f. 17. mars 1976) er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Hún vakti almenna athygli fyrir smásagnasafnið Á meðan hann horfir á þig ertu María mey árið 1998. Árið 1999 kom út Ljúlí júlí og 2000 Fyrirlestur um hamingjuna sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna það ár. Síðan þá hafa komið út Albúm og Sagan af sjóreknu píanóunum (báðar 2002) og Yosoy: Af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss sem hlaut Menningarverðlaun DV árið 2005. Hún hefur gefið út eina ljóðabók (2000) Á brún alls fagnaðar: ljóð handa Hrafni sem er tvöföld bók; hin hliðin geymir ljóðabókina Stiginn til himna: ljóð handa Evu eftir Hrafn Jökulsson.