Freðmýri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Freðmýri (túndra) er nyrsta gróðurbelti jarðar. Þar er hitastig of lágt og vaxtartími of stuttur til að tré geti dafnað. Orðið "túndra" kemur úr samískri mállýsku og þýðir "trjálaus slétta". Tré vaxa sums staðar á túndru. Mörkin á milli góðurbelta túndru og skóglendis er kölluð trjálína eða skógarmörk. Á túndru vaxa lágvaxnar jurtir eins og lágvaxnar víðitegundir, fjalldrapi, grös, mosi og fléttur. Freðmýri eða túndra er skilgreind þar sem er sífreri við -1 °C.
Frostið í freðmýrum getur mótað landslagið og lyft því upp og skapað freðmýrarfyrirbæri eins og rústir og melatígla.