Dýnamó Höfn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fótboltafélagið Dýnamó Höfn | |||||||||||||||||||||||||||||||||
Fullt nafn | Fótboltafélagið Dýnamó Höfn | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Gælunafn(nöfn) | Mafían | ||||||||||||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Stytt nafn | Dýnamó Höfn | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Stofnað | júlí 2004 | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Leikvöllur | Mánagarður | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Stærð | ekki vitað | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Stjórnarformaður | Andri Indriðason | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Knattspyrnustjóri | Eysteinn Sindri Elvarsson | ||||||||||||||||||||||||||||||||
Deild | Malarvinnslubikarinn | ||||||||||||||||||||||||||||||||
2006 | 3. sæti B. riðils | ||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Dýnamó Höfn er knattspyrnulið frá Höfn í Hornafirði sem keppir í utandeild Austurlands, Malarvinnslubikarnum.
[breyta] Saga
Liðið var stofnað um mitt sumar 2004, en þá stóð til að keppa í litlu móti á Borgarfirði eystri sem kallast Álfasteinsspark. Heimavöllur Dýnamó, eins og það er oftast kallað, er Mánagarður í Nesjum. Eysteinn Sindri Elvarsson hefur þjálfað liðið frá upphafi með aðstoð Andra Indriðasonar.
Dýnamó hefur tekið þátt í Malarvinnslubikarnum síðan sumarið 2005 en þá lenti liðið í miklum hrakningum og náði ekki í stig fyrr en í næstsíðustu umferðinni, þegar liðið gerði markalaust jafntefli við U.M.F. Þórshöfn.
Sumarið 2006 gekk mun betur hjá liðinu. Þremur sigrum var landað og þremur jafnteflum.
[breyta] Tölfræði
- Stærsti deildarsigur: 7-3 gegn K.E. 13. júlí 2006
- Stærsti heimasigur: 7-3 gegn K.E. 13. júlí 2006
- Stærsti útisigur: 2-1 gegn HRV FC 18. júlí 2006
- Stærsta tap: 1-11 gegn K.E. 2005
- Flestir leikir : 20, Eysteinn Sindri Elvarsson
- Flestir deildarleikir: 16, Sigurður Óskar Jónsson
- Flest mörk : 8, Eysteinn Sindri Elvarsson, Ingi Steinn Þorsteinsson
- Flest deildarmörk: 6, Eysteinn Sindri Elvarsson
- Flest deildarmörk á einu tímabili: 6, Eysteinn Sindri Elvarsson Malarvinnslubikarinn, 2006
- Flest mörk á einu tímabili: 6, Eysteinn Sindri Elvarsson
- Flest mörk skoruð í einum leik: 3, Eysteinn Sindri Elvarsson gegn 06. Apríl, 29. júní 2006
- Flest mörk skoruð á tímabili (lið): 23, 2006
- Flest stig á tímabili: 12 - 10 leikir 2006