Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Akureyri - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Akureyri

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Sveitarfélagið Akureyrarkaupstaður nær einnig yfir Hrísey, þessi grein fjallar þó einungis um Akureyrarbæ.

Akureyri er bær í Eyjafjarðarsýslu á Íslandi og er vestan Eyjafjarðar við botn hans. Þar bjuggu 16.736 manns þann 1. desember 2005. Akureyrarbær er fjórða fjölmennasta sveitarfélag Íslands og það fjölmennasta utan höfuðborgarsvæðisins.

Akureyrarkaupstaður
Skjaldarmerki sveitarfélagsins
Staðsetning sveitarfélagsins
6000
Kjördæmi Norðausturkjördæmi
Flatarmál
 – Samtals
64. sæti
133 km²
Mannfjöldi
 – Samtals
 – Þéttleiki
4. sæti
16.736
125,8/km²
Bæjarstjóri Kristján Þór Júlíusson
Þéttbýliskjarnar Akureyri (íb. 16.562)
Hrísey (íb. 174)
Póstnúmer 600,603,630
Vefsíða sveitarfélagsins

Efnisyfirlit

[breyta] Saga bæjarins

Norðurgata á Eyrinni.
Enlarge
Norðurgata á Eyrinni.

Landnámabók greinir frá því að fyrsti landneminn á svæðinu var Helgi „magri“ Eyvindarson sem kom þangað á 9. öld. Elstu heimildir um nafnið Akureyri eru þó frá 1526 en þá féll dómur á staðnum yfir konu fyrir að hafa sængað hjá karli án þess að hafa giftingarvottorð.

Á 17. öld tóku danskir kaupmenn að reisa búðir sína á sjálfri Akureyri sem var ein af nokkrum eyrum sem sköguðu út í Pollinn. Þeir völdu staðinn vegna afbragðs hafnarskilyrða og einnig vegna þess að héraðið er og var gjöfult landbúnaðarsvæði en dönsku kaupmennirnir sóttust einkum eftir ull og kjöti. Dönsku kaupmennirnir bjuggu þó ekki á Akureyri allt árið á þessum tíma heldur læstu þeir húsum sínum og yfirgáfu staðinn yfir vetrartímann.

Árið 1778 var fyrsta íbúðarhúsið reist á staðnum og varanleg búseta hófst. 8 árum síðar fékk bærinn kaupstaðarréttindi ásamt fimm öðrum bæjum á Íslandi. Þetta var að undirlagi Danakonungs en hann vildi reyna að efla hag Íslands með því að hvetja til þéttbýlismyndunar þar en slíkt var þá nánast óþekkt á landinu. Akureyri stækkaði þó ekki við þetta og missti kaupstaðarréttindin 1836 en náði þeim aftur 1862 og klauf sig þá frá Hrafnagilshreppi, þá hófst vöxtur Akureyrar fyrir alvöru og mörk Akureyrarbæjar og Hrafnagilshrepps voru færð nokkrum sinnum enn eftir því sem bærinn stækkaði. Bændur í Eyjafirði voru þá farnir að bindast samtökum til að styrkja stöðu sína gagnvart dönsku kaupmönnunum, uppúr því varð Kaupfélag Eyfirðinga (KEA) stofnað. KEA átti mikinn þátt í vexti bæjarins, á vegum þess voru rekin mörg iðnfyrirtæki í bænum sem mörg sérhæfðu sig í úrvinnslu landbúnaðarafurða. Árið 1954 var mörkum Akureyrarbæjar og Glæsibæjarhrepps breytt þannig að það þéttbýli sem tekið var að myndast handan Glerár teldist til Akureyrar, þar hefur nú byggst upp Glerárhverfi.

Á síðasta áratug 20. aldar tók Akureyri miklum breytingum, framleiðsluiðnaðurinn sem hafði verið grunnurinn undir bænum lét töluvert á sjá og KEA dró verulega úr umsvifum sínum. Meiri umsvif í verslun og þjónustu, ferðamannaiðnaði, sjávarútvegi og Háskólinn á Akureyri hafa nú komið í stað iðnaðarins að miklu leyti. Hríseyjarhreppur sameinaðist Akureyrarbæ 2004 en í kosningum í október 2005 var tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga í Eyjafirði hafnað á Akureyri.

[breyta] Stjórnmál

Í bæjarstjórn Akureyrar sitja 11 fulltrúar sem kjörnir eru af íbúum bæjarins yfir 18 ára aldri á fjögurra ára fresti. Bæjarstjórn skipar bæjarráð sem fer með fjármálastjórn bæjarins og aðrar fastanefndir sem fjalla um afmörkuð svið. Forseti bæjarstjórnar er æðsti yfirmaður hennar og hún kemur saman á opnum fundum að jafnaði tvisvar í mánuði en bæjarráð fundar vikulega.

Bæjarstjórinn er yfirmaður embættismannakerfisins, hann er ráðinn af bæjarstjórninni og getur verið annaðhvort kjörinn bæjarfulltrúi eða utanaðkomandi. Stjórnkerfinu er svo skipt í þrjú meginsvið (félagssvið, stjórnsýslusvið, tækni- og umhverfissvið) sem svo skiptast í deildir og undir þeim eru einstakar stofnanir.

[breyta] Núverandi skipan bæjarstjórnar

Kosningar til bæjarstjórnar voru síðast haldnar 27. maí 2006. Skipting atkvæða og bæjarfulltrúa var sem hér segir:

Akureyri

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Framsóknarflokkurinn 1427 15 1 3 -2
D Sjálfstæðisflokkurinn 2950 31,2 4 4 -
L Listi fólksins 906 9,6 1 2 -1
O Framfylkingarflokkurinn 299 3,2 0 - -
S Samfylkingin 2190 23,1 3 1 +2
V Vinstri hreyfingin - grænt framboð 1506 15,9 2 1 +1
auðir og ógildir 80 0,8
Alls 9461 100 11 11 -
Á kjörskrá 12067 Kjörsókn 78%


Núverandi meirihluti er myndaður af Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum.

[breyta] Bæjarstjóri

Bæjarstjóri síðan 1998 er Kristján Þór Júlíusson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokkins.

[breyta] Fyrri bæjarstjórar

  • 1919-1934 - Jón Sveinsson
  • 1934-1958 - Steinn Steinsen
  • 1958-1967 - Magnús Guðjónsson
  • 1967-1976 - Bjarni Einarsson
  • 1976-1986 - Helgi M. Bergs
  • 1986-1990 - Sigfús Jónsson
  • 1990-1994 - Halldór Jónsson
  • 1994-1998 - Jakob Björnsson
  • 1998-          Kristján Þór Júlíusson

[breyta] Staðhættir

Akureyri stendur í botni Eyjafjarðar við Pollinn en svo er sjórinn milli Oddeyrar og ósa Eyjafjarðarár kallaður. Í gegnum bæinn rennur Glerá sem aðskilur Glerárhverfi (Þorpið) frá öðrum bæjarhlutum. Önnur hverfi bæjarins eru Oddeyri, Brekkan, Naustahverfi, Innbærinn og Miðbær.

[breyta] Atvinnuvegir

Helstu atvinnuvegir bæjarbúa eru verslun og þjónusta, framleiðsluiðnaður, sjávarútvegur og opinber þjónusta. Í bænum er Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, næststærsta sjúkrahús landsins (á eftir Landsspítala Háskólasjúkrahúsi); tveir stórir framhaldsskólar (MA og VMA) og háskóli. Hlutur framleiðsluiðnaðar í atvinnulífi í bænum hefur minnkað mikið síðustu 15-20 árin, en á móti hefur sjávarútvegur vaxið og í dag hafa tvö stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins, Brim og Samherji þar höfuðstövar.

[breyta] Tenglar

Wikimedia Commons merkið
Margmiðlunarefni tengt Akureyri er að finna á Wikimedia Commons.
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com