Íkarus (hljómsveit)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Íkarus var íslensk hljómsveit sem spilaði rokk og var skipuð Tolla Morthens, Megasi, Kormáki Geirharðssyni og Bergþóri Morthens. Hljómsveitin gaf út tvær breiðskífur hjá Gramminu; The Boys from Chicago árið 1983 með smellinum „Krókódílamaðurinn“ þar sem önnur hlið plötunnar var helguð lögum Tolla, og síðan aðra, Rás 5-20, árið 1984 sem meðal annars innihélt smellinn „Svo skal böl bæta“.