Sveitarstjóri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sveitarstjóri er titill framkvæmdastjóra sveitarfélags á Íslandi. Í sveitarfélögum þar sem er kaupstaður (miðast við að íbúar séu eða hafi verið yfir 1000) kallast þeir bæjarstjórar, en borgarstjóri í Reykjavík. Sveitarstjóri getur verið einn af kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn, en þarf ekki að vera það. Hann skal sitja fundi sveitarstjórnar þar sem hann hefur málfrelsi og tillögurétt en hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn.
Hlutverk sveitarstjóra er að hafa umsjón með daglegum rekstri sveitarfélagsins og framfylgja þeim ákvörðunum sem sveitarstjórn tekur. Hann telst vera æðsti yfirmaður starfsmanna sveitarfélagsins, hefur prókúruumboð sveitarsjóðs og skrifar undir skjöl sem skuldbinda sveitarfélagið (t.d. við kaup og sölu fasteigna, lántökur, ábyrgðir o.s.frv.) í umboði sveitarstjórnar. Hægt er að mæla frekar fyrir um valdsvið sveitarstjórans í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Sveitarfélög þurfa ekki að ráða sveitarstjóra og sumir fámennustu hreppar á Íslandi gera það ekki. Þá er yfirleitt í verkahring oddvita hreppsnefndarinnar að sinna þessum störfum.