Barokk
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Barokk er nafn yfir listastefnu og tímabilið sem stefnan einkenndi. Stefnan einkenndist af miklu skrauti, flúri og þungri tilfinningu. Barokk með léttri tilfinningu er yfirleitt kallað rokkokó. Stefnuna má rekja til Róm í kringum 1600 en þaðan dreifðist hún til Evrópu.
Í tónlist er barokk samheiti yfir bæði barokk og rokkokó. Barokk tónlist einkennist af miklu flúri, trillum og flóknum tónavafningi. Ein aðalástæða þess að ekki er skilgreint í barrok og rokkokó í tónlist er að flytjendur barokks hafa mikið frelsi, nóturnar sýna aðeins byggingu lagsins en svo eiga flytjendur að spinna í skraut og flúr í tónlistina sem gerir hana misþunga eftir flytjendum. Keðjulaglínur voru algengar á þessu tímabili (þó misvinsælar eftir tónskáldum) og á bestu bæjum var samin keðjulaglína með þremur eða fjórum byrjunarpunktum.