Súkkulaði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Súkkulaði er matvara unnin úr kakó. Það er algeng uppistaða í margs konar sælgæti, kökum, ís og ábætisréttum. Súkkulaði er eitt vinsælasta bragðefnið í heiminum.
Súkkulaði er búið til úr kakóbaunum sem eru gerjaðar, ristaðar og malaðar. Baunirnar koma af kakótrénu (fræðiheiti: Theobroma cacao) en það á uppruna sinn í mið Ameríku og Mexíkó og er núna ræktað í hitabeltinu. Kakótréð hefur verið ræktað frá dögum Maja og Azteka. Kakóbaunir eru beiskar og bragðmiklar. Það sem sumir vita ekki er að súkkulaði leysir endorfín úr líkamanum þannig að manni líði eins og maður sé ástfanginn.
Afurðir úr kakóbaunum eru:
- Kakó, kakóduft fæst með því að breyta hreinsuðum, afhýddum og ristuðum kakóbaunum í duft
- Kakósmjör er fita sem fæst úr kakóbaunum eða hluta þeirra
- Súkkulaði er blanda af kakódufti og kakósmjöri
Sykruð blanda af kakódufti og feiti sem í er bætt ýmsum öðrum efnum svo sem mjólkurdufti er það sem í daglegu máli er kallað súkkulaði. Súkkulaði er oft framleitt í litlum mótum og tengist neysla hátíðum t.d. súkkulaðikanínur og páskaegg á páskum.
Nafnið súkkulaði kemur líklega úr Nahuatl tungumálinu sem er mál frumbyggja í miðri Mexíkó. Ein kenning er að það komi frá orðinu xocolatl á Nahuatl máli og það merki xocolli sem þýðir beiskur og atl sem þýðir vatn. Málfræðingar hafa bent á að í mörgum mállýskum af Nahuatl sé súkkulaði 'chicolatl' sem er orð yfir eins konar þeytara sem notaðir voru til að hræra í kakódrykkjum.
Það hafa fundist fornleifar sem benda til um að Majar hafi drukkið súkkulaði fyrir 2600 árum. Astekar tengdu súkkulaði við frjósemisgyðjuna Xochiquetzal. Í nýja heiminum var drukkinn beiskur og kryddaður drykkur úr súkkulaði sem kallaður var xocoatl. Í þessum drykk var m.a. vanilla og chilípipar. Xocoatl var notaður sem eins konar orkudrykkur. Súkkulaði var munaðarvara í Ameríku fyrir daga Kristófer Kólumbusar og kakóbaunir voru oft notaðar sem gjaldmiðill.
Kristófer Kólumbus færði Ferdinand og Isabellu á Spáni nokkrar kakóbaunir en það var svo Hernando Cortes sem kynnti Evrópumönnum þessa nýju vöru.
Fyrsta skráða sendingin af súkkulaði til gamla heimsins var send með skipi frá Veracruz til Seville árið 1585. Á þeim tíma var súkkulaði ennþá neytt sem drykkjar en Evrópumenn bættu við sykri og mjólk og tóku út chilipipar en bættu í vanillu. Á 17. öld var súkkulaðineysla munaður meðal aðalsmanna í Evrópu.
[breyta] Hósti
Rannsóknir hafa sýnt að súkkulaði getur komið í veg fyrir mikinn hósta. Súkkulaðið er allt að þriðjungi áhrifaríkara en kódein, sem er helsta hóstameðalið, og mýkir upp hálsinn þannig að maður hóstar ekki eins mikið.
[breyta] Heimildir
- Greinin „chocolate“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 18. júlí 2006.
- „Súkkulaði er sérstakt (Rúnar Ingibjartsson)“. Sótt 19. júlí 2006.
- Vísindavefurinn: „Hver er saga súkkulaðisins?“
- Vísindavefurinn: „Hvaða áhrif hefur súkkulaði á líkamann?“
- „Reglugerð um kakó- og súkkulaðivörur “. Sótt 19. júlí 2006.