Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Sænska - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Sænska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Sænska (svenska)
Talað hvar: Svíþjóð og Finnlandi
Heimshluti: Norður-Evrópa
Fjöldi málhafa: 9,3 milljónir
Sæti: 89
Ætt: Indóevrópskt

 Germönsk
  Norðurgermönsk
   Austurnorræn
     Sænska

Opinber staða
Opinbert tungumál: Svíþjóð (de facto)

Finnland (ásamt finnsku)
Áland (einhliða)
Evrópusambandið
(ásamt öðrum tungumálum evrópusambandsins)

Stýrt af: Sænskri málstöð
(semi-official)
Tungumálakóðar
ISO 639-1: sv
ISO 639-2: swe
SIL: SWD
TungumálListi yfir tungumál
Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Sænska er norrænt mál sem aðallega er talað í Svíþjóð og nokkrum hlutum Finnlands, aðallega með ströndum Eystrasalts og á Álands eyjum, samanlagt nærri 9,5 milljónir talendur. Sænska er gagnkvæmt skiljanleg dönsku og norsku. Stöðluð sænska (ríkissænska) er sameiginleg þjóðtunga sem varð til úr mállýskum Mið-Svíþjóðar á 19. öld og var endanlega formuð í byrjun 20. aldar. Þrátt fyrir að ríkismálið er allsráðandi í fjölmiðlum og skólum eru enn til sterkar svæðisbundnar mállýskur. Sumar þessar mállýskur eru talsvert frábrugðnar ríkismálinu bæði varðandi málfræði og orðaforða og margar nánast óskiljanlegar fyrir aðra. Nefna má gotlensku, skánsku, Älvdalsmål og finnlandssænsku. Allar þessar mállýskur eiga þó í vök að verjast gegn ríkismálinu (og finnsku í Finnlandi).

Efnisyfirlit

[breyta] Þjóðtungur eða mállýskumunur

Ef farið væri eftir venjulegum reglum um skilgreiningu á sjálfstæðum málum mundu skandinavísku málin, danska, norska og sænska vera álitin mállýskuafbrigð af sameiginlegu tungumáli. Af sögulegum (meðal annars mörgum og löngum stríðum milli danaveldis og svía á 16. og 17. öld) og pólitískum ástæðum hafa þó skapast sérstakar reglur fyrir hvert mál um málfræði og orðaforða. Á landamærasvæðum Noregs og Svíþjóðar er ekki hægt af talmáli fólks að afgera hvort það talar norsku eða sænsku.

[breyta] Söguágrip

Fornausturnorræna er í Svíþjóð nefnd rúnasænska og í Danmörku rúnadanska, þó að fram á 12. öld hafi sama mál verið talað á báðum landsvæðunum. Málin eru nefn rúnamál vegna þess að allt ritmál sem til er frá þessum tíma er rúnaletur. Megnið af fornnorrænu rúnasteinunum eru áletraðir með yngra Fuþark stafrófinu sem einungis hafði 16 bókstafi. Vegna þess að svo fáa stafi var um að velja var hver stafur notaður fyrir mörg hljóð. Til dæmis var sérhljóðið u einnig notað fyrir o, ø og y, og rúnin i var notuð fyri e.

Ein af þeim breytingum sem aðgreindi fornausturnorrænu (rúna- sænsku og dönsku) var hljóðbreyting tvíhljóðsins æi (fornvesturnorræna ei) í einhljóðið e, eins og í stæin yfir í sten. Þetta sést á rúnasteinunum þar sem á þeim eldri stendur stain og yngri stin. Einnig breytist au eins og í dauðr yfir í ø eins og í døðr. Á sama hátt breyttist tvíhljóðið øy (fornvesturnorræna ey) yfir í ø.

Á miðöldum breytist smám saman við ritun latínutexta á Norðurlöndum "ae" í æ – og einnig stundum í a' –. Samsetningin "aa" varð á sama hátt að aa, og "oe" varð oe. Þessir þrír bókstafir urðu á sænsku ä, å og ö.

[breyta] Framburður

Sænska er frábrugðin flestum öðrum málum í hljómfalli, sem er mjög misjafnt í mállýskum. Hér er bæði um mismunandi áherslur og tónhæð að ræða. Í málinu eru óvenju mörg sérhljóð, níu sérhljóð sem eru aðskild eftir lengd og tónhæð, samanlagt 17 sérhljóða fónem. Sænska hefur einnig sérstöðu þau fónem sem á sænsku oft eru kölluð sje-hljóðin. Þó að þessi hljóð minni að nokkru á hliðstæð varahljóð í öðrum tungum eru þau í raun einstæð fyrir sænsku.

[breyta] Ritmál

Sænska stafrófið hefur 28 bókstafi: 26 bókstafi latneska stafrófsins með undantekningu fyrir 'W', ásamt þremur eigin stöfum Å / å (borið fram eins og íslenskt o, Ä / ä (borið fram eins og danskt æ), og Ö / ö (sem er borið fram opnara en á íslensku). W er einungis notað í nöfnum og erlendum orðum og er borið fram eins og V.

A, B, C, D, E, F, G, H, I, J, K, L, M,N, O, P, Q, R, S, T, U, V, X, Y, Z, Å, Ä, Ö

[breyta] Tenglar

Wiktionary merkið
Orðabókaskilgreiningu fyrir Sænska er að finna í Wikiorðabókinni.
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com